Leikfélag Selfoss
  • Facebook
Bókanir: 482-2787 | midasala@leikfelagselfoss.is
  • – Panta miða –
  • Sýningar
    • Fyrri sýningar
    • Hugarflug
  • Myndir
  • Dagatal
  • Um félagið
    • Um félagið
    • Sagan
    • Stjórn
    • Aðalfundir og skýrslur
    • Lög leikfélagsins
    • Önnur embætti
    • Önnur starfsemi
    • Skipurit
Search the site...

Samlestur á Skilaboðaskjóðunni

Við hjá Leikfélagi Selfoss bjóðum öll 15 ára og eldri hjartanlega velkomin á samlestur og leiksmiðju í sambandi við Skilaboðaskjóðuna sem verður sett upp eftir áramót.

Hvort sem þig langar til að stíga á svið sem leikari, taka þátt í tónlistarflutningi eða taka þátt í starfi á bak við tjöldin við búninga, ljós, hljóð, leikmynd, miðasölu eða markaðssetningu þá er þetta frábært tækifæri til að taka þátt í skapandi ferli og læra eitthvað nýtt.

Leikstjóri sýningarinnar verður Gunnar Ingi Gunnsteinsson leikari og leikstjóri. Gunnar hefur tekið þátt í og leikstýrt fjölda sýninga og nú síðast Kardimommubænum hjá Leikfélagi Keflavíkur og Ávaxtakörfunni hjá Leikfélagi Hveragerðis.

Við verðum með dagskrá í Litla leikhúsinu við Sigtún helgina 15. og 16. nóvember

  • Laugardaginn 15. nóv – Kl. 11:00-15:00
  • Sunnudaginn 16. nóv – Kl. 11:00-15:00

Ef þú hefur áhuga á að vera með en kemst ekki þessa helgi þá endilega láttu okkur vita á leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is. En við hvetjum alla til þess að mæta á samlestur til að kynnast verkinu og hvort öðru.

Hlökkum til að sjá ykkur öll!

facebookDeildu á Facebook
TwitterTweet
FollowFylgdu okkur

Comments are closed.

Skráðu þig á póstlistann okkar:

verk7
verk7
hollvinafelag
hollvinafelag
mynd3
mynd3
verk1
verk1

Vefur smíðaður og hýstur hjá:

Leikfélag Selfoss - Sigtún 1, 800 Selfoss - leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is - s. 482-2787