Leikfélag Selfoss
  • Facebook
Bókanir: 482-2787 | midasala@leikfelagselfoss.is
  • – Panta miða –
  • Sýningar
    • Fyrri sýningar
    • Hugarflug
  • Myndir
  • Dagatal
  • Um félagið
    • Um félagið
    • Sagan
    • Stjórn
    • Aðalfundir og skýrslur
    • Lög leikfélagsins
    • Önnur embætti
    • Önnur starfsemi
    • Skipurit
Search the site...

Leiksmiðja með Rúnari Guðbrands

Við kynnum spennt leiksmiðju í aðdraganda uppsetningar Leikfélags Selfoss leikárið 2026-2027.

Við byrjum snemma í ár og verður stóra sýning ársins frumsýnd í lok október. Í framhaldi af leiksmiðjunni verður valið leikverk og valið í hlutverk og æfingar hefjast svo strax í framhaldi af því.

Að þessu sinni höfum við fengið til liðs við okkur hinn margrómaða Rúnar Guðbrandsson leikstjóra. Rúnar hefur komið áður við sögu Leikfélags Selfoss því árið 2020 leikstýrði hann Djöflaeyjunni, árið 2017 Kirsuberjagarðinum eftir Chekov og árið 2012 Sólarferð eftir Guðmund Steinsson. Rúnar hefur sett upp fjölda sýninga hjá sjálfstæðum atvinnuleikhúsum og áhugaleikfélögum um land allt, auk þess að hafa kennt leiklist við Kvikmyndaskólann.

Leiksmiðjan er opin öllum áhugasömum 16 ára og eldri, hvort sem áhuginn liggur á sviði leiklistar eða á bakvið tjöldin. Að vanda tökum við sérstaklega vel á móti nýju fólki sem hefur áhuga á að bætast í hina sívaxandi leikhúsfjölskyldu eða vill einfaldlega kynna sér starf leikfélagsins betur.

Leiksmiðjan verður haldin í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi dagana 5.-6. september frá kl. 13:00 – 17:00 og ekki er nauðsynlegt að mæta báða dagana.

Ef þig langar að taka þátt í sýningunni en kemst ekki þessa daga þá endilega láttu okkur vita á leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is

Sjáumst hress og kát!

Stjórn Leikfélags Selfoss

facebookDeildu á Facebook
TwitterTweet
FollowFylgdu okkur

Comments are closed.

Skráðu þig á póstlistann okkar:

verk7
verk7
threkogtar
threkogtar
hnerrinn
hnerrinn
threkogtar
threkogtar

Vefur smíðaður og hýstur hjá:

Leikfélag Selfoss - Sigtún 1, 800 Selfoss - leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is - s. 482-2787