Leikfélag Selfoss
  • Facebook
Bókanir: 482-2787 | midasala@leikfelagselfoss.is
  • – Panta miða –
  • Sýningar
    • Fyrri sýningar
    • Hugarflug
  • Myndir
  • Dagatal
  • Um félagið
    • Um félagið
    • Sagan
    • Stjórn
    • Aðalfundir og skýrslur
    • Lög leikfélagsins
    • Önnur embætti
    • Önnur starfsemi
    • Skipurit
Search the site...

Hugarflug – haust 2025

Fyrsti fundur fyrir Hugarflug sem stefnt er á að sýna þann 18. október, verður haldinn í Litla leikhúsinu við Sigtún þann 1. október kl 20.

Hugarflug er vettvangur fyrir alla sem langar til að stíga á svið eða vinna á bak við tjöldin að gera svo.

Á Hugarflugi má gera það sem hugurinn girnist. Til dæmis:

  • Setja á svið stuttverk (Leikur, leikstjórn, búningar, ljós og hljóð)
  • Flytja ljóð
  • Vera með söngatriði
  • Sýna töfrabrögð
  • Vera með uppistand

Eða hvað sem þér dettur í hug. Eina krafan sem við gerum er að þú látir okkur vita hvað þig langar að gera.

Æfingaferlið er 2-3 vikur, stutt en hnitmiðað og upplagt fyrir þá sem hafa ekki mikinn tíma en vilja engu að síður sinna listinni.

Margir ungir leikarar hafa stigið sín fyrstu spor á Hugarflugi og oftar en ekki eru hinir ungu og óslípuðu leiklistardemantar yngri kynslóðarinnar stór partur leikhópsins í bland við eldri og reyndari.

Fundurinn er ætlaður til að láta vita af sér og til að para saman fólk sem vill leika við leikstjóra, finna verk til að sýna og hittast og ráða ráðum okkar og æfingar verða svo settar upp í kjölfarið.

Ef þið komist ekki á fundinn en langar til að vera með, eða eruð með stuttverk sem ykkur langar að leyfa öðrum að koma á svið, þá endilega sendið okkur línu á leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is eða hafið samband hér á facebook.

Endilega láttu sjá þig og leiktu með okkur!

facebookDeildu á Facebook
TwitterTweet
FollowFylgdu okkur

Comments are closed.

Skráðu þig á póstlistann okkar:

Sigtun1 3
Sigtun1 3
verk7
verk7
Sigtun1
Sigtun1
sjoraeningaprinsessa
sjoraeningaprinsessa

Vefur smíðaður og hýstur hjá:

Leikfélag Selfoss - Sigtún 1, 800 Selfoss - leikfelagselfoss@leikfelagselfoss.is - s. 482-2787