Kæru vinir! Að þessu sinni ráðumst við ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því DJÖFLAEYJAN, í öllu sínu veldi, hefur risið nokkuð örugglega síðustu vikur í húsakynnum Leikfélags Selfoss. Margir þekkja vel þessa stóru fjölskyldusögu um fólkið í Thulekampi eftir Einar Kárason, en þessi sýning byggir á skáldsögunum Þar sem Djöflaeyjan rís og Gulleyjunni.
Leiðsögumaður okkar um Djöflaeyjuna heitir Rúnar Guðbrandsson og starfar hann nú í þriðja sinn með Leikfélagi Selfoss því hann leikstýrði einnig Sólarferð 2012 og Kirsuberjagarðinum 2016.
Sýningin er viðamikil í allri sinni dýrð, um 40 manns koma að sýningunni og hvorki meir né minna en 24 leikarar stíga á svið þegar mest lætur. Það er sérstaklega skemmtilegt að segja frá að fimm fyrrverandi og núverandi formenn koma að sýningunni í ár. Tónlist er einnig áberandi í verkinu og getum við státað okkur af einvalaliði tónlistarfólks sem bæði leikur og syngur af hjartans list. Hópurinn í heild samanstendur af reynsluboltum til margra ára en einnig er að finna minna slípaða demanta sem eru að stíga sín fyrstu skref innan Leikhússins. Saman galdrar þessi hæfileikaríki hópur fram Djöflaeyjuna á áhrifaríkan hátt sem þú áhorfandi góður hefur ekki séð áður.
Frumsýning er 6. mars en miðasala hefst í næstu viku hér á vefsíðunni okkar undir – Bóka miða – hér að ofan og í síma 482-2787.
Athugið að við teljum að sýningin sé ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Guðný Lára
Formaður Leikfélags Selfoss