Um síðustu helgi frumsýndum við hjá Leikfélag Selfoss sýninguna Grandavegur 7, byggt á bók Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur, fyrir fullum sal áhorfenda og viðtökurnar voru frábærar. Það er svo gaman að skapa saman, að sjá þennan heim lifna við, finna hvernig allt smellur saman með óþrjótandi vinnu allra sem […]
Sýningar hefjast á Grandavegi 7
Við frumsýnum leikverkið Grandaveg 7 föstudaginn 30. október. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson. Hann hefur áður leikstýrt þremur sýningum hjá Leikfélagi Selfoss: Sólarferð, Kirsuberjagarðinum og Djöflaeyjunni. Húsið að Grandavegi 7 geymir sögu þriggja kynslóða – íslenska fjölskyldusögu um brennandi […]
Leiksmiðja með Rúnari Guðbrands
Við kynnum spennt leiksmiðju í aðdraganda uppsetningar Leikfélags Selfoss leikárið 2026-2027. Við byrjum snemma í ár og verður stóra sýning ársins frumsýnd í lok október. Í framhaldi af leiksmiðjunni verður valið leikverk og valið í hlutverk og æfingar hefjast svo strax í framhaldi af því. Að þessu sinni höfum við fengið til liðs við okkur […]
Samlestur á Skilaboðaskjóðunni
Við hjá Leikfélagi Selfoss bjóðum öll 15 ára og eldri hjartanlega velkomin á samlestur og leiksmiðju í sambandi við Skilaboðaskjóðuna sem verður sett upp eftir áramót. Hvort sem þig langar til að stíga á svið sem leikari, taka þátt í tónlistarflutningi eða taka þátt í starfi á bak við tjöldin við búninga, ljós, hljóð, leikmynd, […]
Hugarflug – haust 2025
Fyrsti fundur fyrir Hugarflug sem stefnt er á að sýna þann 18. október, verður haldinn í Litla leikhúsinu við Sigtún þann 1. október kl 20. Hugarflug er vettvangur fyrir alla sem langar til að stíga á svið eða vinna á bak við tjöldin að gera svo. Á Hugarflugi má gera það sem hugurinn girnist. Til […]
Hugarflug

Frá 8.-15. Október ætlum við að halda Hugarflug með nýju sniði og eru öll velkomin. 8. Okt Kl. 11-15 ætlum við að hittast í litla leikhúsinu og tala aðeins um stuttverka skrif, fá kveikjur og skrifa saman. 9. Okt Kl. 11-15 hittumst við svo og lesum saman þau stuttverk sem voru skrifuð á laugardeginum og […]
Haustfundur 27. Sept Kl. 20:00

Haustfundur Leikfélags Selfoss verður haldinn þriðjudaginn 27. september næstkomandi. Dagskrá vetrarins verður kynnt, það verður kaffi á könnunni og góður félagsskapur. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er opinn öllum sem hafa áhuga á að kynna sér starf leikfélagsins. Við hvetjum áhugasama til að mæta og eiga notalega samverustund í litla leikhúsinu við Sigtún (rauða húsið […]
Líf og fjör hjá Leikfélagi Selfoss

Á mínum ungdómsárum voru sýndir þættir í sjónvarpinu sem hétu Líf og fjör í læknadeild. Þættir þessir komu upp í hugann á sýningunni Beint í æð eftir Ray Cooney. Leikritið gerist á spítala og í þessari uppsetningu er sá spítali Landakot og blasir Landakotskirkja við út um glugga sem er á leiksviðinu. Í leikritinu er ekki verið að fjalla um […]
Leikfélag Selfoss frumsýnir Beint í æð! 29. október!

BÓKIÐ MIÐA HÉR – Undanfarnar vikur hefur staðið yfir uppsetning og æfingar á gamanleikritinu Beint í æð! eftir Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar heitins. Verkið er hvorki meira né minna bráðfyndið og drephlægilegt, eða “bráðdrepandi og hlægilega fyndið” eins og leikstjórinn, Gunnar Björn Gunnarsson, mismælti sig svo skemmtilega á einni æfingunni. Á sviðinu […]
LS hefur æfingar á gamanleikritinu Beint í æð eftir Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.

Verkið er bráðfyndið og drephlægilegt, eða “Bráðdrepandi og hlægilega fyndið” eins og leikstjórinn, Gunnar Björn Guðmundsson, mismælti sig á einni æfingunni. Á sviðinu verða bæði þrautreyndir og glænýjir leikfélagar, og úrvalsfólk á bak við tjöldin. “Við vildum endilega hefja leikárið með hlátri og gleði, það veitir ekki af eftir síðustu misseri”, segir Guðný Lára Gunnarsdóttir, formaður […]
