Aðalfundur Leikfélags Selfoss 2018 verður haldinn mánudaginn 14. maí kl. 20:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Viðhöfð verða venjuleg aðalfundarstörf, m.a. stjórnarkjör og inntaka nýrra félaga. Aðalfundir L.S. eru heimilislegir og í flesta staði léttir og skemmtilegir. Allir eru velkomnir.
Sérstaklega er vakin athygli á því að nýir félagar geta gengið formlega í félagið á aðalfundi. Einnig er vakin athygli áhugasamra á því að skuldlausir félagar geta boðið sig fram í stjórn og varastjórn á aðalfundi (nýjir félagar líka). Auk þess er fundarmönnum frjálst að leggja erindi og fyrirspurnir fyrir fundinn í liðnum önnur mál.
Tillögur til laga- eða skipuritsbreytinga má leggja fyrir aðalfund, en þær þurfa að berast til stjórnar eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund, skriflega eða í tölvupósti. Lög og skipurit félagsins má sjá á heimasíðu leikfélagsins, leikfelagselfoss.is undir liðnum “Um félagið”.
Að lokum minnum við á facebooksíðuna Leikfélag Selfoss, heimasíðuna leikfelagselfoss.is og tölvupóstinn leikfelagselfoss@gmail.com þar sem hægt að skrá sig á póstlista og fá ýmsar tilkynningar um starf félagsins auk þess að spyrja nánar út í aðalfundinn.
Breytingartillögur á skipuriti frá stjórn má sjá á facebook viðburði fyrir aðalfundinn á facebook síðu félagsins Leikfélag Selfoss.
Bókanir: 482-2787 | midasala@leikfelagselfoss.is