Frumsýnt: 2018
Fjöldi sýninga:
Fjöldi áhorfenda:
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Höfundur: HC Andersen og leikhópurinn
Leikfélag Selfoss kynnir međ stolti fjölskylduverkið “Á vit ævintýranna” í leikstjórn Ágústu Skúladóttur sem frumsýnt verđur 12. október í Litla leikhúsinu viđ Sigtún.
Sýningin er sameiginleg sköpun leikstjórans, leikhópsins og hins skapandi teymis sem vinnur á bakviđ tjöldin.Verkiđ er byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og stóra Kláus, ljóðinu um Sálina hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson ásamt kvæði Páls J. Árdal, En hvað það var skrýtið. Allt stórskemmtilegir dýrgripir úr gullkistu ævintýranna.
Ágústa Skúladóttir leikstjóri hefur sett upp fjöldan allan af leiksýningum bæði hérlendis og erlendis, hvort sem er í áhuga- eða atvinnuleikhúsum. Hún hefur unnið til ýmissa verðlauna gegnum tíðina, nú síðast hlaut hún Grímuna barnasýning ársins 2018, fyrir sýninguna Í Skugga Sveins eftir Karl Ágúst Úlfsson. Ágústa vinnur nú í fyrsta sinn með Leikfélagi Selfoss og má með sanni segja að henni takist afskaplega vel að laða fram hugmyndaflug og leikgleði hjá hópnum.
Við hvetjum alla unga sem aldna til að tryggja sér miða í tíma því oft komast færri að en vilja.